já, fyrirsögnin segir það sem segja þarf...
Er ekki búin að vera sú hressasta síðustu vikurnar. Byrjaði á að verða agalega slöpp í einhverja daga, beinverkir og dúndrandi hausverkur sem engin verkjalyf virkuðu á. Náði að jafna mig á því og þá verður Gunni veikur! Fær einhverja ógeðslega flensu. Fyrst var ég að vona að þetta væri það sama og ég hafði verið með en nei, þetta var bara kvef og hálsbólga og hiti og viðbjóður.... og auðvitað náði hann að smita mig af því...
Svo síðan á síðasta laugardag er ég búin að vera með viðbjóðsflensu, byrjaði á kvefi, fór yfir í berkjubólgu og nú er ég komin með lungnabólgu

Er komin með púst og sýklalyf sem ég á að taka í heila 15 daga, hverki meira né minna. Og ekki til að hjálpa þá er ég búin að vera að vinna stanlaust í 2 vikur án frídags svo ég er orðin uppgefin. Það er ekki gaman að vinna með lungnabólgu, maður er móður af því að labba 2-3 skref! Þegar ég labba upp stigann hérna heima þá er eins og ég hafi verið að hlaupa uppá 8. hæð!! Sem betur fer gat ég unnið stutt í dag þar sem yndisleg systir mín gat tekið vaktina mína og ég þurfti bara að fara að leysa af í mat og svona. Enda fékk ég þau fyrirmæli frá lækninum í gær að ég mætti alls ekki fara í vinnuna, það er bara erfitt að fara eftir því þegar það er svona rosalega undirmannað eins og er hjá okkur þessa dagana. En ég á frí alla helgina og það er rosalegur léttir

Nú er líka orðið opinbert að Fat face verður lokað, sennilega í enda þessa mánaðar. Enda var ALLT starfsfólkið (við allar fjórar sem vorum búnar að þrauka þarna hehe) búið að segja upp, allir búnir að fá nóg eins og staðan var. Ég held að þetta sé búð nr 6 í kringlunni sem lokar bara síðan í mars eða apríl.. sýnir aðeins ástandið í landinu í dag.
Það sem er samt leiðinlegt við það er að þessi búð er svona fastakúnna búð, þetta er ákveðinn stíll og ákveðinn hópur sem verslar þarna og þá mikið af fólki sem verslar bara þarna og er oft klætt í föt frá okkur frá toppi til táar hehe.. og nokkrir af þessum fastakúnnum eru búnir að koma í búðina síðustu daga og við höfum þá verið að segja þeim að búðin sé að fara að loka og ég sver það, ein kona þurfti að halda aftur af sér að fara ekki að gráta greyið! Margt af þessu fólk sem ég er búin að hitta jafnvel nokkrum sinnum í mánuði síðustu 2 árin og þekki jafnvel með nafni. Það er skemmtilegi hlutinn við að vinna í svona búð, maður kynnist kúnnunum betur en t.d. þegar ég var að vinna í topshop og dp.
Á mánudaginn hefst síðan síðasta vikan mín þarna og svo er það bara leikskólinn
Hlakka svakalega til, fór á deildarfund þar í síðustu viku og leist alveg svakalega vel á starfsfólkið, sérstaklega þær á minni deild. Alveg ótrúlega hressar stelpur. Deildin heitir Brekka og það er elsta deildin. Ég mun koma til með að sjá um yngri hópinn á þessari deild og ég hlakka mikið til

Það eru þá börn sem eru jafngömul Aldísi Lóu.
Svo var ekki verra að ég komst að því á þessum fundi að áætluð er ferð allra starfmanna til New York í enda apríl, námsferð þar sem við munum skoða leikskóla og fleira

Þar sem ég hef aldrei komið til NY þá er þetta auðvitað geðveikt spennandi

Svo er líka annað, ég ætla nú reyndar að sjá hvernig mér líkar þessi vinna en ég er búin að vera að hugsa um að fara kannski að læra leikskólaliða, það er skóli sem ég get auðveldlega tekið með vinnunni því hann er bara 1 kvöld í viku ef ég man rétt.. og það er alveg eitthvað sem ég treysti mér í því ég er nú ekki með mesta skólaáhugan!
Jæja, ég er orðin viðbjóðslega þreytt og kisa er að væla á vatn, fröken sérvitur neitar að drekka úr dallinum sínum og vill bara rennandi vatn úr krananum á baðvaskinum

Best að fara að skrúfa frá..
later